Jólasvein í heimahús, fjölskylduboðið, afmælið, með pakka heim eða zoom spjall við jólasveinin.

Fjölskylduboð - ættarmót
Í ættarboðið, jóladag, annan í jólum, alla aðra daga
Að fá jólasvein í fjölskylduboðið er frábær leið til að gleðja unga sem aldna. Við segjum sögur, syngjum, dönsum í kringum jólatréð, töfrum og við getum komðið gjafir handa þeim yngstu – eða fengið eitthvað í pokann okkar til að gefa.

Aðfangadagur
Klassísk heimsókn á aðfangadag
Fátt styttir biðina eftir jólunum betur en heimsókn jólasveinanna. Á aðfangadag förum við um og hittum skemmtilega krakka með pakka. Við komum alltaf tveir saman og stoppum í ca. 10 mín, segjum sögur, syngjum og umfram allt hlustum á skemmtilegar sögur barnanna. Heimsókn á aðfangadag hittir alltaf í mark.

Rafrænar persónulegar kveðjur
Hægt að horfa aftur og aftur
Jólasveinar Skyrgáms bjóða uppá rafrænar persónulegar kveðjur til barna. Jólasveininn sendir þá stutt myndband með ákveðin skilaboð og kveðjur til barnanna. Talar um hve dugleg þau hafa verið og kannski er falinn pakki handa þeim einhvers staðar sem þú geta fundið. Hægt að horfa á aftur og aftur – hvar sem er.