Jólasveina í heimsókn á aðfangadag
Heimsóknir sem gleðja
Jólasveinar á aðfangadag með pakka handa öllum stilltum börnum. Öllum börnum finnst skemmtilegt og eftirminnilegt að fá heimsókn jólasveins á aðfangadag. Á hverjum aðfangadegi jóla heimsækjum við tugi heimila og hundruðir barna. Jólasveinarnir gefa pakka sem foreldrar útvega, syngjum, segjum sögu og umfram allt spjöllum við börnin. Spyrjum hvernig börnin hafi það, hvað þau hafi verið að gera og hlustum á hvað þau hafa að segja. Við jólasveinar komum alltaf tveir saman og þannig myndast skemmtileg stemning, gleði og ánægja.
Jólasveinaheimsóknir á aðfangadag hafa alltaf verið stærsti og skemmtilegasti dagur ársins síðan 1998. Allir jólasveinarnir 13 verðum á ferðinni og því möguleiki að heimsækja fullt af heimilum.
Hægt er að velja um ákveðinn tíma, eða fá okkur í heimsókn einhvern tíman milli kl. 10 og 14 en þá látum við vita áður hvenær von er á okkur í heimsókn. Það er því ódýrari kostur en að panta ákveðinn tíma.
Ákveðinn tími
þegar þér hentar- Þú velur tímasetningu
- Hentar vel í fjölskylduboðið
- Hver heimsókn ca. 20 mín.
- 20% til Hjálparstarfs kirkjunnar
- Einn jólasveinn mætir og kætir
Klassísk heimsókn
við látum vita hvenær við komum- Erum á ferðinni milli 10 - 14
- Hver heimsókn ca. 10 mín
- Tveir jólasveinar mæta
- Látum vita hvenær við komum
- Styttir biðina
- 20% til Hjálparstarfsins