Reynslumiklir jólasveinar síðan 1998
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms hóf starfsemi árið 1998 og hefur stækkað og dafnað síðan. Fjöldi reynslumikilla jólasveina starfa hjá þjónustunni sem eykur á traustið, býður uppá sveigjanleika og gerir okkur eina bestu jólasveinaþjónustu landsins.
Við erum liðlegir í tímasetningum, áreiðanlegir og stöndumst allar væntingar.
Erum með sal, veitingar, ballstjórendur, sælgæti, tónlist, myndakassa, poppvélar, candyfloss og að sjálfsögðu alvöru jólasveina.
Elsta þjónusta landsins.
Fullt af lausnum fyrir jólaskemmtunina
Jólaskemmtun getur verið alls konar. Jólabingó, jólaföndur, jólastund, jólaleikir og ýmislegt annað hefur verið boðið uppá sem fjölskylduskemmtun fyrirtækisins. Við getum kíkt í heimsókn eða séð alfarið um skemmtunina.

Lítil jólaskemmtun
Stundum er ekki alveg jólaball. Stundum er bara piparkökubakstur. Jólaföndur. Jólabingó. Jólasveininum finnst alltaf jafn gaman að hitta krakkana hvað sem þau eru að gera.

Tónlistarstjóri fyrir stóra ballið
Jólaball með öllu
Jólasveinarnir geta sent ballstjórnandann á undan sér sem byrjar jólaballið, spilar og syngur undir, stjórnar dansi og sér um að allir skemmti sér vel.
Ballstjórnandinn er eitthvað sem þarf í stærri jólaböllin.

Jólaball
Jólasveinarnir koma við á jólaböllin. Allt frá því að mæta einn og uppí 13 jólasveina með Grýlu. Getum tekið með okkur ballstjórnanda byrjar á undan okkur og spilar og syngur.

Leikir, föndur og stöðvar
Öðruvísi jólaskemmtun
Þetta þarf ekki að vera bara jólaball. Nokkur fyrirtæki hafa tekið uppá því að vera með hinar ýmsu leikjastöðvar með jólaívafi. Við hjá Skyrgámi getum haldið úti leikjadagskrá með dansi, sporti, föndri, leikjum, söngur og fleira í þeim dúr.
Endilega hafðu samband og við finnum skemmtilegar lausnir handa þínu fyrirtæki.

Sælgætispokar
Jólasveinar geta gefið hvað sem er úr pokanum sínum. Til að auðvelda hlutina fyrir skipuleggjendum bjóðum við uppá frábæra lausn. Við komum með nóg af nammipokum handa öllum börnum og tökum afgangana með heim. Eingöngu greitt fyrir það magn sem dreift er. Engar áhyggjur – við tökum þær.

Jólabingó
Rafrænt eða á staðnum
Jólabingó er alltaf vinsæl skemmtun. Jólasveinar Skyrgáms geta komið og stjórnað bingóinu, útvegað vinninga eða bara kíkt í heimsókn með smá skemmtun.

Salur fyrir jólaskemmtun
Salur fyrir allt að 150 manns
Erum með frábæran flottan sal, félagsheimili KFUM á Holtavegi, fyrir allt að 150 manns.. Þjónusta með salnum og hægt að koma með eða kaupa kaffiveitingar eftir jólaballið.
20% til Hjálparstarfs kirkjunnar
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms hefur ætíð gefið 20% af öllum jólasveinaheimsóknum til Hjálparstarfs kirkjunnar

Gjafir fyrir börnin
Útvegum alls konar gjafir fyrir börnin og vinsælast eru sælgætispokarnir okkar góðu. Getum einnig gefið það sem okkur er látið í té.
Fáðu að vita hvað við getum gert fyrir ykkur
Endilega sendu okkur línu og við setjum saman frábæra jólaskemmtun