Við sjáum um gleðilegt jólaball
– fagleg vinnubrögð síðan 1998
Jólaball og jólaheimsókn sem hentar 30–300 manns – við sjáum um tónlist, dagskrá og flæði
Örugg og skemmtileg jólaheimsókn fyrir aldurshópa – söngur, leikur og skýr dagskrá.
Hlý og persónuleg heimsókn jólasveins – gleði, myndatökur og minningar
Við höfum gleðjað börn og fullorðna síðan 1998
Hundruðir jólaheimsókna, ár eftir ár – alltaf með bros og hlýju
Fyrsta jólaheimsóknin okkar var 1998.
Frá leikskólu, heimahúsum til stórfyrirtækja.
Við gefum alltaf til baka.
Við mætum á réttum tíma, alltaf.
Segðu okkur frá viðburðinum og við svörum hratt með tilboð.
Skyrgámur þjónustar fyrirtæki, einstaklinga, heilu fjölskyldurnar, leikskóla, kirkjur, skóla og alla þá sem ætla að halda frábært jólaball eða bara fá jólasvein í heimsókn.
Jólasveinar á jólaball er frábær skemmtun. Við hjá Skyrgámi höfum yfir 20 ára reynslu og komum á allar jólaskemmtanir. Jólaskemmtun getur verið frá því að fjölskyldan fær til sín einn jólasvein í stutta heimsókn, eða 1000 manna fyrirtæki fær til sín 13 jólasveina á jólaballið þar sem tónlistarstjóri stjórnar dansi og söng.
Skyrgámur og bræður útvega skemmtikrafta á jólaskemmtanir og öll tilefni sem jólasveina er þörf. Frá stofnun árið 1998 hefur Skyrgámur ehf stjórnað á sjötta þúsund jólaskemmtunum. Mikil reynsla og þekking hefur skapast á tímabilinu. Stofnendur og eigendur þjónustunnar eru Bendt Bendtsen og Guðni Már Harðarson og hafa þeir rekið þjónustuna alla tíð.
Skyrgámur hefur skapað sér hóp traustra og ánægðra viðskiptavina sem samanstendur af fjölmörgum fyrirtækjum, leikskólum, einstaklingum, félagasamtökum og stofnunum. Jólasveinaþjónustan býður uppá heildarlausn fyrir skipuleggjendur jólaballa.