Síðan 1998 höfum við skapað ógleymanlega jólastemningu fyrir hundruð íslenskra fyrirtækja – bókaðu þinn viðburð í dag og láttu börnin (og fullorðna) njóta sannrar jólagleði!
Fjöldi reynslumikilla og traustra jólasveina starfar hjá okkur, sem tryggir faglega þjónustu, sveigjanleika og einstaka upplifun fyrir alla aldurshópa.
Við leggjum metnað í að mæta þínum þörfum — hvort sem um er að ræða fyrirtækjaviðburð, jólaball eða einkaviðburð — og stöndum við allar væntingar.
Við bjóðum upp á sveigjanlegar tímasetningar, áreiðanleika og hlýlegt andrúmsloft sem gerir okkur að einni ástsælustu jólasveinaþjónustu landsins.
Jólaskemmtun getur verið alls konar — jólabingó, jólaföndur, jólastund, jólaleikir og ýmislegt annað sem kallar fram jólaandann og samveruna.
Við hjálpum þér að skapa einstaka upplifun fyrir starfsfólk og fjölskyldur þeirra — hvort sem þú vilt að við komum í heimsókn eða sjáum alfarið um skemmtunina frá upphafi til enda.

Stundum er ekki alveg jólaball. Stundum er bara piparkökubakstur. Jólaföndur. Jólabingó. Jólasveininum finnst alltaf jafn gaman að hitta krakkana hvað sem þau eru að gera.

Jólaball með öllu Jólasveinarnir geta sent ballstjórnandann á undan sér sem byrjar jólaballið, spilar og syngur undir, stjórnar dansi og sér um að allir skemmti sér vel. Ballstjórnandinn er eitthvað sem þarf í stærri jólaböllin.

Jólasveinarnir koma við á jólaböllin. Allt frá því að mæta einn og uppí 13 jólasveina með Grýlu. Getum tekið með okkur ballstjórnanda byrjar á undan okkur og spilar og syngur.

Öðruvísi jólaskemmtun Þetta þarf ekki að vera bara jólaball. Nokkur fyrirtæki hafa tekið uppá því að vera með hinar ýmsu leikjastöðvar með jólaívafi. Við hjá Skyrgámi getum haldið úti leikjadagskrá með dansi, sporti, föndri, leikjum, söngur og fleira í þeim dúr. Endilega hafðu samband og við finnum skemmtilegar lausnir handa þínu fyrirtæki.

Salur fyrir allt að 150 manns Erum með frábæran flottan sal, félagsheimili KFUM á Holtavegi, fyrir allt að 150 manns.. Þjónusta með salnum og hægt að koma með eða kaupa kaffiveitingar eftir jólaballið.

Rafrænt eða á staðnum Jólabingó er alltaf vinsæl skemmtun. Jólasveinar Skyrgáms geta komið og stjórnað bingóinu, útvegað vinninga eða bara kíkt í heimsókn með smá skemmtun.

Jólasveinar geta gefið hvað sem er úr pokanum sínum. Til að auðvelda hlutina fyrir skipuleggjendum bjóðum við uppá frábæra lausn. Við komum með nóg af nammipokum handa öllum börnum og tökum afgangana með heim. Eingöngu greitt fyrir það magn sem dreift er. Engar áhyggjur – við tökum þær.

Jólasveinar kíkja við í jólaskóga sem víða er að finna umhverfis höfuðborgarsvæðið. Við erum að tala um Heiðmörk, Brynjudal, Elliðaárdal, Björnslund og fleiri stöðum. Gaman er að rekast á jólasvein sem er á göngu um skóginn – til að undirbúa sig fyrir skógjafarferðina sína.
Endilega sendu okkur línu og við setjum saman frábæra jólaskemmtun fyrir ykkur
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms hefur ætíð gefið 20% af öllum jólasveinaheimsóknum til Hjálparstarfs kirkjunnar