October 26th, 2008
Undirbúningur jóla er hafinn hjá mörgum og þá sérstaklega hjá okkur bræðrum enda eru jólin okkar tími. Við erum byrjaðir fyrir löngu að taka niður á blað hvert okkar er óskað um þessi jól. Pantanir eru byrjaðar að streyma inn og það má með sanni segja að margir óska þess að hitta okkur þessi jólin.
Það er ekki hægt að segja annað en að okkur hlakki til að mæta til byggða.
Comments Off
September 19th, 2008
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna með gleði í hjarta að píanóistinn okkar og ballstjórnandinn Árni Heiðar Karlsson verður með okkur þessi jólin eftir vetursetu erlendis um síðustu jól, en Árni er einn best menntaði píanóisti landsins, eldhress og skemmtilegur ballstjórnandi. Árni hefur verið hjá okkur undanfarin ár og sinnt ballstjórnun með miklum sóma á Jólaböllum Skyrgáms og bræðra. Read the rest of this entry »
Comments Off
September 11th, 2008
Heyrst hefur að þeir bræður séu að vakna af djúpum sumarblundi og séu farnir á stjá, einn af öðrum. Að sjálfögðu fer Gáttaþefur fyrstur á fætur því hann þarf að opna bókina góðu þar sem skráð eru niður heimsóknir þeirra bræðra til þeirra fjölmörgu barna sem vilja fá bræður í heimsókn. Hann hefur nefnilega svo gott nef fyrir svona hlutum.
Þeir hljóta síðan að fara á fætur hver á eftir öðrum og heyrst hefur að þeir séu tilbúnir til að kíkja fullt af heimsóknum um þessi jólin. Best er þó að hafa samband við Gáttaþef í tölvupósti með því að senda á netfangið hans gattathefur@skyrgamur.is og svo að sjálfsögðu kíkir hann á póstinn hjá öllum bræðrum sínum á meðan þeir eru að þrífa og sig og gera sig klára.
Jólin í desember næstkomandi verða svo sannarlega jólin í ár.
Comments Off
January 22nd, 2008
Þá eru þessi blessuð jól liðin og bræðurnir allir fyrir löngu komnir heim til sín. Við hjá Jólasveinaþjónustu Skyrgáms erum ánægðir með öll þau jólaböll sem við heimsóttum og erum ánægðir með útkomuna. Við heimsóttum yfir 100 jólaböll og það fóru hátt í 200 jólasveinar í heimsókn þessi jólin og því er ekki hægt annað en að gleðjast yfir því. Allir fengu eitthvað fallegt og gott frá jólasveininum og má segja að börnin hafi verið vel yfir 1000 sem sáu okkur á þessar vertíð. Þeir sem þurfa að hafa samband við okkur af einhverjum ástæðum eftir þessa vertíð er bent á að hafa samband í gegnum tölvupóst, skyrgamur hja skyrgamur.is Annars hlakkar okkur til næstu jóla og vonumst eftir að heimsækja alla aftur og vonandi fleiri á næstu jólum … sem styttist óðum í (það lengist allavega ekki í þau).
Comments Off
November 18th, 2007
Bókanir hjá Jólasveinaþjónustu Skyrgáms ganga vel og eru nokkrir dagar þegar orðnir fullbókaðir. Skyrgámur og bræður eru hæstánægðir með þetta og sagði Ketkrókur að hann hlakki mikið til jólanna eins og undanfarin ár. Talaði hann um að hann fengi að fara oftar í ár en síðustu ár þar sem Bjúgnakrækir mun meira sjá um heimilið í ár þar sem mamma þeirra, Grýla, ætlar að fara víða í ár, enda aldrei eins vinsæl hjá ungum börnum.
Það er því mikilvægt fyrir þá sem vilja fá þá í heimsókna að hafa samband sem fyrst svo ekki verði um seinan og missa af heimsókn frá einum af 13 bræðrunum, ekki væri gaman að fá bara heimsókn frá jólakettinum.
Comments Off
November 12th, 2007
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms afhenti í morgun Hjálparstarfi kirkjunnar 808.800 krónur að gjöf. Þetta er 20% af veltu síðasta árs.
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms hefur starfað í 10 ár og leggur áherslu á að miðla boðskap jólanna. Jólasveinaþjónustan heimsækir hundruð leikskóla, fyrirtækja og einstaklinga fyrir jólin með boðskap og grín og gefur jafnan 20% af veltunni til Hjálparstarfsins. Á þeim 10 árum sem hún hefur starfað hefur þjónustan gefið rúmlega 3.1 milljónir króna til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Í morgun gafst jólasveinunum tækifæri til að spreyta sig við að opna nýja vefsíðu hjá Hjálparstarfinu og kaupa gjafabréf sem notuð verða í þróunarhjálp. Allir fengu að versla og varð niðurstaðan þessi:
Stekkjastaur gaf 1 brunn
Giljagaur gaf 2 hús fyrir munaðarlaus börn
Stúfur gaf 3 kýr
Þvörusleikir gaf 4 x verkfærakassa fyrir unga iðnaðarmenn
Pottaskefill gaf 5 búslóðir fyrir munaðarlaus börn
Askasleikir gaf 6 kamra
Hurðaskellir gaf 7 x 1000 tré
Skyrgámur gaf 8 reiðhjól
Bjúgnakrækir gaf 9 geitur
Gluggagægir gaf 10 kassa af smokkum
Gáttaþefur gaf 11 x grænmetisgarða
Ketkrókur gaf 12 hænur
Kertasníkir gaf 13 börn frelsuð úr ánauð
Að auki gaf Grýla 7 saumavélar og
Leppalúði 1 vatnstank
Samtals 808.800 kr
Bókanir hjá Skyrgámi ganga gríðarlega vel og mun Hjálparstarf kirkjunnar njóta góðs af viðskiptum jólaveinaþjónustunnar að venju. Þeir sem vilja njóta góðrar skemmtunar með Grýlu og jólasveinunum í desember fá allar nánari upplýsingar með því að senda póst á skyrgamur(hjá)skyrgamur.is eða hjá umboðsmanni okkar í síma 587 1097 og 694 7474.
Hér má sjá frétt um afhendinguna á mbl.is
Comments Off
November 7th, 2007
Samkvæmt pöntunarbók okkar jólasveinanna þá virðist sem leikskólar vilji helst halda jólaböllin sín fyrir hádegi þann 14. desember næstkomandi. Þessi morgunn er feikivinsæll og er hann orðinn full bókaður hjá Jólasveinaþjónustu Skyrgáms. Er þetta mjög ánægjulegt að sjá að við bræður fáum að kíkja í heimsókn í marga leikskóla á Höfuðborgarsvæðinu. Aðrir dagar eru komnir langt á veg að fullbókast og því er nauðsynlegt að hafa hraðar hendur og kanna málið hjá okkur svo hægt sé að fá reyndustu jólasveinana í heimsókn.
Comments Off
October 19th, 2007
Skyrgámur hefur náð að tala móður sína hana Grýlu til á ný og fá hana með sér þessi jólin til byggða. Fötin sem hún saumaði fyrir þremur árum passa ennþá fínt og eru ekki enn mjög slitin. Hún er því spennt að heimsækja börn á ný þessi jól. Grýla hefur verið reyndar orðið fremur feiminn eftir að öll börnin urðu þæg og henni fannst eins og hlutverki sínu væri lokið. Hún hefur nú komist yfir þessa tilvistarkreppu að mestu og er tilbúin að heimsækja fleiri börn og koma við á fleirum stöðum en áður - ef hún má koma. Hún kemur ekki óboðin og því er um að gera að hringja og spyrja hvort hún geti komið með strákunum sínum og spjallað aðeins við börnin.
Comments Off
October 19th, 2007
Þessa dagana eru bræðurnir á fullu í undirbúningi fyrir jólin og komu sína til byggða. Þeir eru þvi oftar en ekki mjög uppteknir og eiga erfitt með að svara í símann. Best er að notast við tölvupóstsendingar eða koma skilaboðum til þeirra í talhólfið. Skyrgámur og Gáttaþefur munu hafa samband eins fljótt og þeir geta. Við viljum því minna á símann hjá þeim bræðrum 587 1097 og netfangið skyrgamur@skyrgamur.is og gattathefur@skyrgamur.is
Comments Off
November 28th, 2006

Jólasveinaþjónusta Skyrgáms hefur keypt 251 geit og 5 hænur, ekki til brúks á fjöllum Íslands heldur til afhendingar í Malaví og Úganda þar sem Hjálparstarf kirkjunnar styður þróuanrverkefni. Jólasveinaþjónustan heimsækir hundruð leikskóla, fyrirtækja og einstaklinga fyrir jólin með boðskap og grín og gefur 20% af veltunni til Hjálparstarfsins. Gjafaféð og kaupverð geitanna og hænsna nam 604.000 kr. og er afrakstur skemmtana jólasveinanna um síðustu jól.
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms hefur starfað í 9 ár og leggur áherslu á að miðla boðskap jólanna. Á þessum árum hefur þjónustan gefið rúmlega 2,3 milljónir til Hjálparstarfsins í brýn verkefni í fátækum löndum.
Skyrgámur er í startholunum fyrir þessi jól og mun Hjálparstarf kirkjunnar njóta góðs af viðskiptum þeirra þessi jól. Þeir sem vilja njóta góðrar skemmtunar með Grýlu og jólasveinunum í desember fá allar nánari upplýsingar á heimasíðu sveinanna www.skyrgamur.is eða í síma 587 1097 hjá umboðsmanni þeirra.
(Tekið af vef Hjálparstarfs kirkjunnar)
Comments Off