Jólasveinaþjónusta Skyrgáms
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms útvegar skemmtikrafta á jólaskemmtanir og víðar. Skyrgámur og félagar hafa 11 ára reynslu af jólaskemmtunum.
Hvað gerir jólasveinaþjónusta Skyrgáms?Skyrgámur er nú að hefja sitt tólfta starfsár og hefur á þeim tíma skapað sér hóp traustra og ánægðra viðskiptavina. Þessi hópur samanstendur af fjölmörgum fyrirtækjum, leikskólum, einstaklingum, félagasamtökum og stofnunum. Meðal ánægra viðskiptavina má nefna Leikskólinn Jörfi, Toyota, Fylkir og Árbæjarkirkja svo fáein dæmi séu nefnd.
Starfsmenn Skyrgáms hafa allir mikla reynslu af leiklist og starfi með börnum, ýmist á leikjanámskeiðum, við íþróttaþjálfun, í barnastarfi kirkjunnar eða í sumarbúðunum í Vatnaskógi.
Jólasveinarnir geta komið einn eða fleiri, á hvers kyns jólaskemmtanir, spjallað við börnin, sagt sögur, sýnt galdra, leikið á hljóðfæri og sungið. Einnig bjóðum við uppá heildarlausn fyrir skipuleggjendur jólaballa, útvegum sal, píanóleikara, forsöngvara, hljóðkerfi, sælgæti, veitingar og allt það sem til þarf svo jólaballið verði fullkomið.
Jólasveinaþjónusta Skyrgáms hefur frá upphafi tekið þá stefnu að starfa í anda jólanna. Til að leggja sitt af mörkum rennur 20% af veltu þjónustunnar til Hjálparstarfs Kirkjunnar. Samstarfið við Hjálparstarfið hefur verið mjög árangursríkt og skilað á fimmtu milljón króna til bágstaddra í Indlandi og Mósambík. Í ár, 2008, gáfum við helminginn til innanlandsaðstoðar og hinn helmginn í vatnsverkefni í Afríku.
Tengilliðir Skyrgáms við umheiminn eru þeir félagar og æskuvinir úr Árbæjarhverfi, Guðni Már Harðarson og Bendt Harðarson.
Best er að hafa samband í gegnum netfangið skyrgamur hjá skyrgamur.is eða með því að hringja í okkur í síma 587-1097 eða 660-2430.
