Kveðjur frá viðskiptavini
Við fáum oft góðar kveðjur frá þeim sem við heimsækjum í tilefni komu jólanna. Hér er ein kveðja sem barst okkur frá Lögmannsstofunni Logos í síðustu viku þar sem við heimsóttum þau á jólaball. Á staðnum þegar við komum var Árni Heiðar sem spilaði undir og stjórnaði söng og jólaballinu öllu.
Sæll Skyrgámur,
Ég vil byrja á að þakka ykkur kærlega fyrir frábæra skemmtun í gærkvöldi. Ánægjan skein úr augum allra hér í gær og erum við búin að fá þvílíkar þakkir fyrir að hafa skipulagt svona gott jólaball þar sem bestu jólasveinar sem fólk hefur nokkru sinni komist í návígi við skemmtu bæði börnum og fullorðnum. Það hefur mikið verið talað um þetta í dag og greinilegt að fólk var alveg yfir sig hrifið. Enda ekki við öðru að búast þar sem hér er um að ræða vana menn. Þú mátt því endilega koma þessum lofum og þökkum áfram til þinna jólasveina og einnig til Árna Heiðars þar sem einnig hefur verið mikið talað um hvað hann var góður ballstjórnandi.
Kveðja
Solveig Edda CosserLOGOS
Efstaleiti 5
103 Reykjavík