Jólasveinar á vappi
Þá er komin 1. í aðventu og því fylgir að við bræður erum komnir aðeins á stjá. Við erum samt ekki opinberlega komnir til byggða en það má segja að við séum að undirbúa komu okkar. Undirbúningurinn er þannig að við förum á röltið um sveitirnar í kringum höfuðborgarsvæðið og stundum látum við sjá okkur þar.
Við hittum mörg leikskólabörnin þar sem þau verða úti í skógi með leikskólafólkinu að leita að hinu rétta jólatré eða bara í skógargöngu og er það alltaf jafn gaman að hitta minnstu börnin kappklætt í kuldanum. Við þurfum að sjálfsögðu að koma okkur í rétta formið fyrir jólin því það er nóg að gera að gefa öllum þessum þægu börnum í skóinn þegar líða fer að jólum.
Það er bara um að gera að hafa samband við okkur ef þið viljið að við kíkjum í heimsókn til ykkar fyrir og um jólin. Við heimsækjum alla, alls staðar, hvenær sem er, heimahús, fyrirtæki, skóla, leikskóla, kirkjur og alla þá sem vilja að jólasveinninn kíkji við í skemmtilega heimsókn.