Að panta sveinka

Þá eru pantanir byrja að streyma inn til okkar hjá Jólasveinaþjónustu Skyrgáms. Vinsælast er að senda á okkur tölvupósta og erum við í því þessa dagana að svara öllum þeim fjölda pósta sem koma inn til okkar. Öllum póstum er svarað þannig að svar er komið daginn eftir að fyrirspurn hefur verið send til okkar.

Einnig erum við stundum við símann en best er að ná í okkar fyrir hádegi á daginn þar sem við bræður erum önnum kafnir við að útbúa okkar fjölbreyttu og skemmtilegu sælgætispoka og gjafir sem við munum reyna að dreifa til sem flestra í ár.

Þeir sem vilja hafa samband við okkur er bent á að senda tölvupóst á netfangið skyrgamur@skyrgamur.is eða með því að hringja í okkur í síma 587-1097.

Comments are closed.