Panta jólasvein – Reyndustu jólasveinarnir

Jólasveinar heimsækja börn heim til þeirra

Jólasveinar á aðfangadag með pakka handa öllum stilltum börnum. Öllum börnum finnst skemmtilegt og eftirminnilegt að fá slíka heimsókn. Á hverjum aðfangadegi jóla heimsækjum við tugi heimila og hundruðir barna. Jólasveinarnir gefa pakka sem foreldrar útvega, syngjum saman, segjum kannski eina sögu og umfram allt spjöllum við börnin. Spyrjum hvernig börnin hafi það, hvað þau hafi verið að gera og hlustum á hvað þau hafa að segja. Við bræður erum alltaf tveir saman og þannig myndast skemmtileg stemmning.

Hver heimsókn er í kringum 10 mínútur og er nægur tími í spjall og glens.

Allir jólasveinarnir eru á ferðinni á aðfangadag frá klukkan 10 um morguninn og til að verða 14. Við förum svo á milli staða í þeirri röð sem hentar hverju sinni. Við látum vita nokkrum dögum áður hvenær von er á okkur í heimsókn.

Heimsóknir á aðfangadag hafa alltaf verið stærsti og skemmtilegasti dagur ársins síðan 1998. Við erum allir jólasveinarnir á ferðinni og því möguleiki að heimsækja fullt af heimilum.

Hér er hægt að panta jólasvein á aðfangadag í heimsókn.

 

Frá stofnun Jólasveinaþjónustu Skyrgáms árið 1998 höfum við gefið 20% af öllum heimsóknum jólasveinsins til Hjálparstarfs kirkjunnar.