Kveðja úr einu fjölskylduboðinu
Okkur langar að setja hér inn smá klausu úr tölvupósti sem okkur barst í dag:
þið eruð frábærir…. það voru allir hæstánægðir með sveinana og
jólaballið, það eru alveg áhöld um hverjir skemmtu sér betur, börnin
eða fullorðnir. og sonardóttir mín syngur núna,,ég sá ömmu kissa
jólasvein….
þið fáið meðmæli frá okkur…
Bestu þakkir fyrir okkur…
kv. Sjöfn…
Þetta er ein af fjölmörgum góðum kveðjum sem við höfum fengið til okkar. Við höfum nú heimsótt vel á annað hundrað staði. Fjöldi barna sem hafa hitt okkur er ekki hægt að telja. Við verðum á ferðinni á milli jóla og nýárs og getum enn bætt við okkur fjölskylduboðum, fyrirtækjaheimsóknum eða aðra staði þar sem fólk er saman komið í tilefni jólanna.