Heimsókn á aðfangadag

Senn líður að jólum og eru bara örfáir dagar til jóla. Því er hver að verða síðastur að panta heimsókn alvöru jólasveina á aðfangadag heim til sín. Fyrirkomulagið er mjög einfalt. Við verðum á ferðinni frá kl. 11 til rúmlega 13 á aðfangadag og látum við fólk vita hvenær von er á okkur til þeirra deginum áður. Tveir jólasveinar koma saman í hverja heimsókn og stoppa í ca. 10 mínútur. Þeir segja syngja, segja sögur, töfra eitthvað skemmtilegt og afhenda pakka ef þess er óskað.

Vinsældir heimsókna jólasveinanna hafa aukist ár frá ári og eru alltaf jafn skemmtilegur viðburður. Nokkrar fjölskyldur hafa fengið okkur í heimsókn frá upphafi og eru jólasveinarnir farnir að hitta börn þeirra barna sem þeir heimsóttu fyrir 12 árum síðan.

Þeir sem vilja fá heimsókn 2ja sveina á aðfangadag geta haft samband með því að senda tölvupóst á netfangið skyrgamur@skyrgamur.is. Tekið verður við pöntunum fram á þriðjudag, 22. desember, ef ekki fyllist hjá okkur fyrr.

Comments are closed.