Grýla bakar brauð handa hungruðum heimi - hefur gefið 5 milljónir til Hjálparstarfs kirkjunnar

Mamma og ég að gefa brauðMánudaginn 30. des kl. 11:00 boða Grýla og Skyrgámur og Hjálparstarf kirkjunnar til blaðamannafundar við Esjustofu sem er fagur veitingaskáli við rætur Esju.

Á fundinum mun Grýla mæta í fylgd sona sinna með nýbakað brauð í fórum sínum, brauð sem hún hefur bakað handa hungruðum heimi og sonur hennar Skyrgámur mun afhenda 584.400 kr  króna afrakstur Jólasveinaþjónustu Skyrgáms sem árlega safnar til Hjálparstarfs kirkjunnar. Peningunum verður skipt jafns milli innanlands- og utanlandsaðstoðar Hjálparstarfsins.

Jólasveinaþjónustan hefur nú gefið rúmlega fimm milljónir til Hjálparstarfs kirkjunnar á 12 ára starfsferli sínum. Fénu hefur verið varið hérlendis sem og í Malaví og Úganda þar sem Hjálparstarf kirkjunnar styður þróunarverkefni.

Jólasveinaþjónustan heimsækir hundruð leikskóla, fyrirtækja og einstaklinga fyrir jólin með boðskap og grín og gefur 20% af veltunni til Hjálparstarfsins.

Hægt er að sjá viðtal við Grýlu og Skyrgám hér.

Comments are closed.