Jólasveinaheimsókn á aðfangadag
Viltu fá 2 hressa, skemmtilega, skrýtna, káta, syngjandi glaða, rammgöldrótta og umfram allt alvöru jólasveina í heimsókn til þín á aðfangadag? Jólasveinaþjónusta Skyrgáms mun í ár eins og mörg önnur árin bjóða uppá slíka þjónustu. Það koma 2 jólasveinar í heimsókn og stoppa þeir í um það bil 10 mínútur á hverjum stað. Þeir syngja, segja sögur, galdra kannski, spjalla við börnin og fullorðna og reyna að stitta biðina eftir jólunum.
Við erum á ferðinni frá kl. 11 til kl. 14 og við munum láta alla vita hvenær von er á okkur í heimsókn. Þeir sem hafa áhuga að fá þessa 2 skrítnu og hressu karla í heimsókn geta haft samband í gegnum tölvupóst skyrgamur@skyrgamur.is eða með því að hringja í síma 5871097. Tekið er við pöntunum fram til sunnudagsins 21. desember.